Það mun snjóa í vetur, við vitum bara ekki hvenær og ekki heldur hvenær verður fært aftur. Við Þurfum því stundum að fresta námskeiðum.

Það verða því lokanir bæði til skemmri og lengri tíma yfir vetrarmánuðina.

Við getum því ekki sagt til um hvernig opnun verður nema við höfum námskeið þegar hægt verður.

Ef námskeið fellur niður vegna veðurs verður haft samband og opnað aftur þegar fært verður í ökugerðinu.